Ef tvö horn hafa einn sameiginlegan arm og hinir armarnir eru gagnstæðar hálflínur, þá er sagt að hornin séu grannhorn.
Dæmi: Á myndinni eru $\angle AOB$ og $\angle BOC$ grannhorn.
Ef hægt er að flytja horn þannig að það verði grannhorn annars horns, þá er sagt að hornin séu frændhorn.
Dæmi: Á myndinni eru $\angle AOB$ og $\angle CPD$ frændhorn.
Ef tvö hvöss horn hafa einn sameiginlegan arm og hinir armarnir eru þverstæðir, þá er sagt að hornin séu lagshorn.
Dæmi: Á myndinni eru $\angle AOB$ og $\angle BOC$ lagshorn.