Hringur er innritaður í marghyrning ef allar hliðar marghyrningsins eru snertlar við hringinn.
Almennt hafa marghyrningar engan innritaðan hring. Þó hafa þríhyrningar innritaðan hring og er miðja hans í skurðpunkti helmingalína horna þríhyrningsins.
Dæmi: Myndin sýnir þríhyrning með innrituðum hring.