- Utanvert horn
Ytra horn (við þríhyrning)
Horn sem er grannhorn einhvers af hornum þríhyrnings kallast ytra horn við þríhyrninginn. Horn þríhyrningsins eru þá stundum kölluð innri horn þríhyrningsins. Oft er vísað í þau tvö af innri hornum þríhyrnings sem ekki eru grannhorn tiltekins ytra horns sem fjarlægu innri horn þríhyrningsins.
Dæmi: Á myndinni er $\angle CBD$ ytra horn við þríhyrninginn $ABC$. Það er grannhorn $\angle ABC$. Bæði $\angle A$ og $\angle C$ eru fjarlæg innri horn við ytra hornið $\angle BCD$.
Í evklíðskri sléttu er eftirfarandi niðurstaða ákaflega gagnleg. Hún er oft nefnd setningin um ytra horn.
Setning: Ytra horns þríhyrnings er jafn stórt og samanlögð fjarlægari innri horn þríhyrningsins.
Dæmi: Látum $ABC$ vera þríhyrning þar sem $\angle A$ er $35^\circ$ og $\angle C$ er $30^\circ$. Bæði grannhorn $\angle B$ eru þá $35^\circ + 30^\circ = 65^\circ$ samkvæmt setningunni um ytra horn.