Er til náttúrleg tala n þannig að þegar talan er rituð í tugakerfi þá er síðasti tölustafurinn ekki 0, og þegar röð tölustafanna er snúið við þá fæst talan 2n?
Fimm punktar á hring eru númeraðir 1, 2, 3, 4 og 5
eins og sýnt er á myndinni. Fló hoppar á milli punktanna réttsælis þannig að ef hún er í punkti með
oddatölunúmeri, þá hoppar hún í næsta punkt, en ef númer punktsins er slétt tala þá hoppar hún yfir einn punkt. Ef flóin byrjar í punkti 5, í hvaða punkti verður hún þá eftir 1996 hopp?
Hver eru möguleg gildi á tölu n>9 þannig að n börn geti skipt
9 eins súkkulaðistykkjum jafnt á milli sín án þess að skipta nokkru
stykki í fleiri en tvo hluta.