Skip to Content

Og

Fyrir sérhverjar yrðingar $p$ og $q$ er $p \wedge q$ (lesið: „$p$ og $q$“) sú yrðing sem segir að $p$ og $q$ séu báðar sannar. Yrðingin $p \wedge q$ er þess vegna sönn þegar yrðingarnar $p$ og $q$ eru báðar sannar, en annars er hún ósönn.

Fyrir sérhverjar yrðingar $p$ og $q$ er $p \vee q$ (lesið: „$p$ eða $q$“) sú yrðing sem segir að a.m.k. önnur yrðinganna $p$ og $q$ sé sönn. Yrðingin $p \vee q$ er þess vegna ósönn þegar yrðingarnar $p$ og $q$ eru báðar ósannar, en annars er hún sönn.

Ekki

Fyrir sérhverja yrðingu $p$ er $\neg p$ (lesið: „ekki $p$“) sú yrðing sem fæst með því að neita yrðingunni $p$. Yrðingin $\neg p$ hefur þess vegna alltaf öfugt sanngildi við yrðinguna $p$.

Yrðing er staðhæfing sem er annaðhvort sönn eða ósönn. Yrðingar eru yfirleitt táknaðar með litlum bókstöfum eins og $p$, $q$, $r$ o.s.frv.

Syndicate content