Skip to Content

Jólafundur

Tími: 
27. desember 2018 - 17:15
Staðsetning: 
stofu V-157 í VR-II við Hjarðarhaga

Stjórn Íslenska Stærðfræðafélagsins óskar félagsmönnum gleðilegra jóla og boðar til jólafundar þann 27.12 kl 17:15 í VR-2, stofu 157.

Fyrirlesari: Ragnar Sigurðsson, prófessor við Háskóla Íslands
Efni: Hvernig á að taka kvaðratrót af afleiðuvirkjanum D?

Boðið verður upp á kaffi og með því kl 17:15 og fyrirlesturinn byrjar kl 17:30.

Kær kveðja,
stjórnin

Árið 2018

Á hverju ári gefur Íslenska stærðfræðafélagið þeim nýstúdentum sem náð hafa framúrskarandi árangri í stærðfræði á stúdentsprófi bók í viðurkenningarskyni. Vorið 2018 var það bókin „Síðasta setning Fermats“ eftir Simon Singh og verðlaunin hlutu:

  • Ásmundur Óskar Ásmundsson, Menntaskólanum í Reykjavík
  • Bjarni Ármann Atlason, Verzlunarskóla Íslands
  • Bjarni Geir H.

Almennur fundur - An introduction to combinatorial species

Tími: 
22. nóvember 2018 - 16:45
Staðsetning: 
VR-II við Hjarðarhaga

Fundur verður haldinn í félaginu fimmtudaginn 22. nóvember í VR-II við Hjarðarhaga (stofa enn óákvörðuð). Að venju hefst fundurinn með kaffidrykkju kl 16:45, en kl 17:00 heldur Anders Claesson fyrirlesturinn

An introduction to combinatorial species

Hornræknir slembiferlar - hamingjusamt hjónaband líkindafræði og tvinnfallagreiningar.

Tími: 
4. október 2018 - 16:45
Staðsetning: 
í stofu 258 í VR-II við Hjarðarhaga.

Fundur verður haldinn í félaginu fimmtudaginn 4. október í stofu 258 í VR-II við Hjarðarhaga. Að venju hefst fundurinn með kaffidrykkju kl 16:45, en kl 17:00 heldur Sigurður Örn Stefánsson fyrirlesturinn

Hornræknir slembiferlar - hamingjusamt hjónaband líkindafræði og tvinnfallagreiningar.

Aðalfundur 2018

Tími: 
28. maí 2018 - 17:00
Staðsetning: 
verður auglýst síðar

Aðalfundur Íslenska stærðfræðafélagsins verður haldinn mánudaginn 28. maí kl 17:00 í VR-II við Hjarðarhaga (stofa auglýst síðar). Dagskrá fundarins verður sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla stjórnar flutt.

3. Samstarfsverkefni félagsins á erlendum vettvangi.

4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.

5. Umsóknir um félagsaðild bornar upp.

6. Kosning stjórnarmanna.

7. Kosning skoðunarmanns reikninga.

8. Ákvörðun árgjalds.

9. Önnur mál.

Við vonumst til að sjá sem flesta félaga á fundinum.

Rafmynt - fundur fyrir alla félagsmenn

Tími: 
18. apríl 2018 - 16:45
Staðsetning: 
í stofu V-158 í VR-II við Hjarðarhaga

Fundur verður haldinn í félaginu miðvikudaginn 18. apríl í stofu V-158 í VR-II við Hjarðarhaga. Að venju hefst fundurinn með kaffidrykkju kl 16:45, en kl 17:00 heldur Gunnar Stefánsson prófessor við HÍ fyrirlestur sem hann nefnir Rafmynt: Bitcoin og broskallar.

Solitons and nonlinearity - fundur fyrir alla

Tími: 
27. mars 2018 - 16:45
Staðsetning: 
í stofu V-158 í VR-II við Hjarðarhaga

Fundur verður haldinn í félaginu þriðjudaginn 27. mars í stofu V-158 í VR-II við Hjarðarhaga. Að venju hefst fundurinn með kaffidrykkju kl 16:45, en kl 17:00 heldur Anthony Thomas Lyons fyrirlestur sem hann nefnir Solitons and nonlinearity

Abstract: Solitons (or solitary waves) have played an important role in mathematics and physics since first observed by J. S. Russel in 1834.

Næmnigreining á mælingu þyngdarsviðsins með gervihnöttum - fundur fyrir alla félagsmenn

Tími: 
28. febrúar 2018 - 16:45
Staðsetning: 
stofa V-157 í VR-II við Hjarðarhaga

Fundur verður haldinn í félaginu miðvikudaginn 28. febrúar í stofu V-157 í VR-II við Hjarðarhaga. Að venju hefst fundurinn með kaffidrykkju kl 16:45, en kl 17:00 heldur Indriði Einarsson, fyrirlestur sem hann nefnir Næmnigreining á mælingu þyngdarsviðsins með gervihnöttum.

Fundur fyrir alla félagsmenn: Kunnu Grikkir algebru?

Tími: 
23. janúar 2018 - 16:45
Staðsetning: 
stofu V-157 í VR-II við Hjarðarhaga

Fundur verður haldinn í félaginu þriðjudaginn 23. janúar í stofu V-157 í VR-II við Hjarðarhaga. Að venju hefst fundurinn með kaffidrykkju kl 16:45, en kl 17:00 heldur Kristín Halla Jónsdóttir, dósent emeritus við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, fyrirlestur sem hún gefur yfirskriftina: Kunnu Grikkir algebru?

Í erindinu verður stiklað á stóru í frásögn um 40 ára ritdeilu stærðfræðinga og vísindasagnfræðinga sem snerist um túlkun á efni Bókar II í Frumatriðum Evklíðs.

Jólafundur 2017

Tími: 
28. desember 2017 - 14:15
Staðsetning: 
stofu V-157 í VR-II við Hjarðarhaga

Félagið óskar félagsmönnum gleðilegra jóla og bíður til jólafundar þann 28. desember kl. 14:15 í stofu V-157 í VR-II við Hjarðarhaga. Að venju hefst fundurinn með kaffidrykkju kl 14:15, en kl 14:30 heldur stærðfræðingurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Pawel Bartoszek erindi sem hann nefnir: Þegar ég reyndi að hefna mín á stærðfræðidæmi.

Ágrip:
Sumarið 2016 var íslenskt talnafræðidæmi valið inn á svokallaðan forvalslista eða stuttlista (e. shortlist) vegna Ólympíukeppni í stærðfræði sem fram fór í Hong Kong.

Syndicate content