Skip to Content

Stærðfræði á Íslandi 2017

Tími: 
Laugardaginn, 28. október 2017 - 10:00
Staðsetning: 
Hótel Bifröst

Ágæta félagsfólk.

helgina 28.-29. október verður haldin stærðfræðiráðstefna á vegum félagsins á Hótel Bifröst (http://www.hotelbifrost.is/)

Þátttökugjald er 25.500 kr ef gist er í tveggja manna herbergi, en 28.950 kr ef gist er í eins manns herbergi. Innifalið í þáttökugjaldinu er kaffi og með því í hléum, morgunmatur á sunnudeginum, hádegismatur á laugardegi og sunnudegi, veislumatur á laugardagskvöldi.

Þeir sem vilja taka þátt í ráðstefnunni geta skráð sig hér.

Skráningarfrestur er til 21. október, en meðlimir eru hvattir til þess að skrá sig sem fyrst, svo að við getum örugglega pantað nógu mörg herbergi.

Við viljum minna á að kosningar eru laugardaginn 28. október og því gott að hafa í huga að hægt er að kjósa utan kjörfundar ( sjá )

Með kveðju og von um góða þátttöku,
Stjórn Íslenska Stærðfræðafélagsins

ViðhengiStærð
Stærðfræði á Íslandi 2017.pdf143.19 KB