Skip to Content

Útdauði tegundanna - Fundur fyrir alla félagsmenn

Tími: 
Fimmtudaginn, 19. nóvember 2015 - 16:45
Staðsetning: 
í stofu 258 í VR-II (annari hæð) við Hjarðarhaga

Ágætu félagasmenn og annað áhugafólk um stærðfræði.

Fimmtudaginn 19. nóvember verður félagsfundur í Íslenska stærðfræðafélaginu. Fundurinn fer fram í stofu 258 í VR-II (annari hæð) og hefst að venju með kaffidrykkju klukkan 16:45. Klukkan 17:15 heldur svo Hermann Þórisson prófessor við Háskóla Íslands fyrirlestur.

Efni fyrirlestrarins lýsir Hermann svo:

Þegar Darwin var að kanna uppruna tegunda var frændi hans Galton upptekinn af útdauða tegunda. Galton fékk til liðs við sig vin sinn séra Watson sem reiknaði líkurnar á útdauða í einföldu líkani fyrir einkynja einsleita óháða óhefta fjölgun. Þetta er eitt fyrsta líkindalíkanið og hefur reynst lífseigt. Í erindinu verður líkanið kynnt lauslega og það notað til að varpa ljóstíru á samband stærðfræði og hagnýtinga.

Sjáumst vonandi sem flest!